26.04.2012
 Fréttabréf: Sumar 2012

Fréttabréf: Sumar 2012


Skylminga- og leikjanámskeið fyrir 7-12 ára

Skylminga- og leikjanámskeið SFR er fyrir krakka á aldrinum 7 – 12 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist. Á námskeiðinu er stefnt að því að kynna nemendum helstu grunnatriði skylmingaíþróttarinnar. Við leggjum mikla áherslu á að námskeiðið sé fjölbreytt, spennandi og skemmtilegt og við nýtum okkur frábæra staðsetningu í Laugardalnum. Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, í sund í Laugardalslaug.

Skylminganámskeið fyrir börn og unglinga 10 ára og eldri

Skylminganámskeið SFR er fyrir börn og unglinga 10 ára og eldri sem hafa gaman af skylmingaíþróttinni og vilja kynnast þessari skemmtilegu íþrótt. Á námskeiðinu er stefnt að því að kynna nemendum helstu grunnatriði skylmingaíþróttarinnar. Skylmingar eru mjög skemmtileg íþrótt bæði fyrir stelpur og stráka.

Skylmingar hafa oft verið kallaðar líkamleg skák. Skylmingamaðurinn heldur til leiks með ákveðna leikaðferð í huga en þarf sífellt að endurskipuleggja leik sinn eftir viðbrögðum andstæðingsins og leikstíl hans. Að auki þarf skylmingamaðurinn að hafa góða stjórn á líkamanum, gott jafnvægi og mikla samhæfingu. Einnig þarf hann að geta hugsað hratt undir miklu álagi.

Nánar »  
 12.04.2012
 Fréttabréf 2012-03

Félagsmót SFR


Fréttabréf 2012-03

Nánar »  
 02.04.2012
 Fréttabréf 2012-02

Páskafrí  


Fréttabréf 2012-02


Nánar »  
 04.01.2012
 Vorstarf SFR - Innritun
Bæði kyn frá 7 ára aldri.

Skylmingar eru mjög skemmtileg íþrótt bæði fyrir stelpur og stráka. Því hvetjum við stelpur sérstaklega til að skrá sig.

Fréttabréf: 2012-01
Nánar »  
 04.01.2012
 Vorstarf Skylmingafélags Reykjavíkur

Heil og sæl öllsömul!

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!

Fyrsta skylmingaæfingin á nýrri önn verður mánudaginn 9. janúar og fara æfingar fram á sama tíma og á haustönn. Ef einhver breyting verður á samsetningu hópa geta orðið einhverjar breytingar.

Við gerum ráð fyrir því að allir haldi áfram en ef ekki þá vinsamlegast látið vita í síðasta lagi 7. janúar.


Sjá meðfylgjandi fréttabréf: 2012-01

Nánar »  
 24.12.2011
  Gleðileg jól!


Sendum ykkur og fjölskyldum ykkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsælt komandi ár! Þökkum ánægjulegt samstarf á liðnu ári!

Jólakveðja, Skylmingafélag Reykjavíkur


Nánar »  

1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  Næsta síða 
Skylmingafélag Reykjavíkur • Skylmingamiðstöð í Laugardal • Laugardalsvelli, 104 Reykjavík • Sími 510 2973 • Gsm 898 0533 • skylmingafelag@gmail.com
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is